Prenta út próf

Til að prenta út próf, þurfa allar spurningar að vera á sömu síðu. Það vill svo heppilega til að eftir að kennari forskoðar próf, kemur upp sk. endurskoðun sem sýnir allar spurningar á einni síðu (þrátt fyrir að próf sé sett upp á annan hátt). Þegar vefsíðan er prentuð koma spurningarnar fram en ekki veftrén (dálkarnir) til beggja hliða. Svona er farið að:

  1. Smellið á prófið á áfangasíðunni.
  2. Smellið á tannhjólið tannhjólhægra megin og veljið Forskoða.
  3. Smellið á Ljúka skipti (hægra megin) og á Senda og hætta neðst á síðunni. Staðfestið Senda og hætta. Endurskoðun opnast þar sem allar spurningar koma fram á einni síðu.
    ljúka skipti

    Myndin sýnir reit með númerum spurningar sem birtur er í prófi.

  4. Haldið niðri Ctrl hnappi lyklaborðs á meðan smellt er á p eða farið í prent/print skipun í vafranum. Valgluggi prentunar opnast.
  5. Veljið save to pdf við Destination og vistið prófið á vísum stað til útprentunar síðar eða veljið prentara við „destination“ og prentið út.
    save as pdf

    Myndin sýnir valglugga prentunar.

Ef síðan endurskoðun kemur ekki upp er hægt að setja spurningar tímabundið saman á eina síðu í prófinu og prenta út forskoðunina. Sjá nánar hér fyrir neðan.

Próf prentað út með því að setja allar spurningar á eina síðu

Hægt er að setja allar spurningar á eina síðu með einni aðgerð bæði í uppsetningu prófsins og á síðunni Breyta prófi. Hér er sagt frá hvernig þetta er gert í uppsetningu prófs. Eftir að útprentun er lokið er uppröðun spurninga færð í fyrra horf. Ef uppsetning prófsins er flókin t.d. tvær spurningar á einni síðu þrjár á annarri o.s.frv. borgar sig að afrita prófið og setja spurningar á eina síðu í afritinu. Afritinu er eytt að lokinni útprentun eða það falið fyrir nemendum.

  1. Smellið á prófið á áfangasíðunni.
  2. Smellið á tannhjólið tannhjól og veljið uppsetningu.
  3. Undir Snið þar sem stendur Ný síða, veljið Aldrei, allar spurningar á einni síðu.
  4. Merkið við endursetja blaðsíðunúmer núna.
    snið blaðsíðuskipan prófs

    Myndin sýnir stillingu fyrir uppröðun spurninga í prófi í uppsetningu prófs.

  5. Smellið á vista og birta.

Forskoðið próf og prentið og/eða vistið útprentanlega útgáfu:

  1. Smellið á tannhjól prófsins og veljið Forskoða.
  2. Haldið niðri Ctrl hnappi lyklaborðs á meðan smellt er á p eða farið í prent/print skipun í vafranum. Valgluggi prentunar opnast.
  3. Veljið save to pdf við Destination og vistið prófið á vísum stað til útprentunar síðar eða veljið prentara við Destination og prentið út.

Til að breyta til baka fjölda spurninga á síðu í prófinu er farið aftur í uppsetningu prófsins, skrunað niður að sniði, valið hve margar spurningar eiga að vera á hverri síðu, merkt við endurraða spurningum núna og vistað. Mögulegt er að færa til einstaka spurningar og raða þeim með nákvæmari hætti með því að fara í breyta prófi í tannhjóli prófs.