Moodle býður upp á margs konar verkfæri til að setja upp viðfangsefni og aðföng fyrir nemendur. Verkfærin hafa ólíka virkni og möguleika.
Úrval verkfæra í Moodle skoðað
- Setjið áfangann í ritham með því að smella á hnappinn efst til hægri.
- Smellið á +Nýtt viðfangsefni eða aðföng. Gluggi opnast sem sýnir verkfæri í boði vinstra megin.
- Með því að smella einu sinni á tiltekið verkfæri má fá útskýringar á því hægra megin í glugganum (sjá mynd).
Sjá nánari upplýsingar um einstök viðföng og aðföng á moodle.org.
+Nýtt viðfangsefni eða aðföng er ekki á vef áfangans
Verkfæri í blokkum
Í blokkum eru einnig ólík verkfæri, sérstaklega varðandi umsýslu ýmis konar, skipulag áfanga og aðgang nemenda að þeim upplýsingum sem blokk birtir. Sjá nánar um blokkir.