Samstilla við kerfishóp innritun

Umsýsla áfanga > notendur > innritunarleiðir – samstilla við kerfishóp

      1. Á vef áfanga er farið í notendur > innritunarleiðir  undir umsýslu áfanga.
      2. Veljið innritunarleiðina samstilla við kerfishóp (sjá mynd).
        samstilla-kerfishop

        Ef samstilla við kerfishóp kemur ekki fram í listanum hefur áfanginn ekki aðgang að neinum kerfishópum. Kerfishópar fyrir árganga eða bekki hafa þá ekki verið búnir til fyrir skóla.

      3. Veljið viðeigandi árgang í listanum kerfishópur og smellið á ný innritunarleið (sjá mynd).
        samstilla-kerfishop-2

        Nemendur eru settir í kerfishóp miðað við árgang um leið og þeir eru skráðir í kerfið eða eftir atvikum í bekki.

Kostir

Þegar innritunarleiðin „samstilla við kerfishóp“ er notuð uppfærist innritun í áfanga sjálfkrafa þegar breytingar eru gerðar í kerfishópi árgangs. Þannig er hægt að uppfæra innritun nemenda í öllum þeim áföngum, sem eru samstilltir við kerfishópinn, í einu.

Gallar

Innritun þarf að uppfæra í kerfishópi árgangs en er ekki möguleg í áfanganum sjálfum. Þetta gæti orsakað vandamál t.d. ef nemandi hættir í einum áfanga en heldur áfram í öðrum áföngum árgangsins. Þá hangir nafn nemanda inni í áfanga þrátt fyrir að hann sé hættur. Kennarar hafa ekki aðgang að kerfishópum. Moodle-umsjónaraðili skóla eða kerfisstjóri sjá um að uppfæra kerfishópa.