(competencies and learning plans)
Moodle býður upp á uppsetningu námsáætlana ásamt hæfniviðmiðum. Kennari getur tengt hæfniviðmið við áfanga og/eða einstök viðföng s.s. verkefni, próf, umræður o.fl. Einnig er hægt er að setja upp námsáætlanir og hæfniviðmið kerfislægt þannig að sé aðgengilegt áföngum allra skóla.
- Nánari upplýsingar um hæfniviðmið í Moode á moodle.org
- Útskýringar á uppsetningu námsáætlana og hæfniviðmiða
- „Competencies Framework“
- Spurningar og svör um hæfniviðmið
Hér fyrir neðan eru þrjú stutt vídeó sem útskýra hvernig hæfniviðmið virka í Moodle út frá sjónarhorni nemanda, kennara og kerfisstjóra.
Athugið!
„Competencies” og „learning plans” er nýtt í Moodle. Fyrir var verkfærið „outcomes” sem einnig býður upp á að tengja hæfniviðmið við áfanga og/eða einstök viðföng. Þetta getur skiljanlega valdið ruglingi en um ástæðu þess að búið var til nýtt verkfæri fyrir hæfniviðmið í Moodle má fræðast hér: Framework for competency-based education (CBE) in Moodle. Nánari upplýsingar um „outcomes”.
Sjá einnig síðuna hæfniviðmið tengd við verkefni . Hér er sýnt hvernig eldra verkfærið fyrir hæfniviðmið „outcomes” er notað.