Áður en nemendur geta byrjað að meta skil samnemenda sinna þarf að úthluta skilum vegna mats (jafningjamats). Ef sjálfkrafa úthlutun mats er stillt sér Moodle um að úthluta verkefnum til mats.
- Smellið á verkstæðið á áfangasíðunni.
- Smellið á stilla sjálfkrafa úthlutun (sjá mynd).
- Veljið stillingar sem henta og í samræmi við stærð nemendahóps og vistið breytingar (sjá mynd).
Eftir að breytingar eru vistaðar sést að sjálfkrafa úthlutun er virkjuð.
Úthlutun mats skoðuð
Til að skoða úthlutun mats er smellt á flipann handvirk úthlutun.