Nemandi skráir sig sjálfur í hóp (hópaval)

Til að nemandi geti sjálfur skráð sig í hóp þarf að gera tvennt:

  • Búa til „tóma hópa“ (skel fyrir hvern hóp).
  • Setja upp sjálfskráningu í hópana með sk hópavali (group choice). Hópaval er viðbót í Moodle og er ekki endilega til staðar í Moodle utan grunnskólanna.

Skref 1 – Tómir hópar settir upp

Umsýsla áfanga > notendur > hópar – mynda hópa sjálfvirkt

  1. Farið í hópa undir notendum í umsýslu áfanga og smellið á mynda hópa sjálfvirkt.
  2. Gefið hópunum nafn og setjið annað hvort @ eða # í enda nafns.
  3. Skilgreinið fjölda hópa.
  4. Undir meðlimir hóps við skipa meðlimi þarf að velja enginn meðlimur (sjá mynd).
  5. Ef setja á hópana í klasa um leið þarf annað hvort að velja nýr klasi og gefa honum heiti eða velja klasa sem þegar er til.
  6. Smellið á Senda.

Tómir hópar myndaðir sjálfvirkt

Skref 2 – Sjálfskráning í hópana sett upp

Í ritham > +nýtt viðfangsefni eða aðföng > hópaval (group choice) – nýtt

  1. Farið í ritham.
  2. Smellið á +nýtt viðfangsefni eða aðföng, veljið hópaval og smellið á nýtt.
  3. Skráið nafn t.d. Skráið ykkur í hóp hér vegna . . . eða eitthvað þess háttar. Nafnið verður tengill á forsíðu áfangans.
  4. Veljið þær stillingar sem henta undir ýmsar stillingar t.d.:
    • Hvort nemendur eiga að sjá niðurstöður hópaskráningar.
    • Hvort niðurstöður hópaskráningar eiga að vera nafnlausar eða undir nafni.
    • Hvort nemandi má breyta skráningu sinni í hóp/ skipta um hóp.
    • Hvort sýna á dálk með þeim sem ekki hafa skráð sig í hóp.
    • Hvort takmarka á fjölda nemenda sem geta skráð sig í hvern hóp.
  5. Undir Groups, Available groups þarf að velja tómu hópana sem voru stofnaðir og smella á Add Groups.
  6. Ef þörf krefur er hægt, undir Restrict answering to this time period, að skilyrða skráningu í hópana miðað við tiltekið tímabil.
  7. Valkostir fyrir neðan eru almennir fyrir viðföng Moodle og þarf í flestum tilfellum ekki að nota þegar sett er upp sjálfskráning í hópa.
  8. Vistið neðst á síðunni.

Nemandinn

Til að skrá sig í hóp smellir nemandi á tengilinn sem verður til á forsíðu áfangans, velur hóp og vistar.