Leiðin: Vefumsjón > Notendur > Innskráningarreikningar > Fletta notendalista
- Farið í vefumsjón neðarlega til vinstri undir stillingum.
- Smellið á notendur, innskráningarreikningar og fletta notendalista (sjá mynd).
- Smellið á sýna meira til að fá alla leitarmöguleika (sjá mynd). Skráið leitarskilyrði.
Best er að leita eftir notandanafni eða netfangi ef það er vitað. Ef leitað er út frá nafni er oftast best að sleppa millinafni. - Ýtið á enter á lyklaborði eða smellið á virkja síu neðst.
- Leitarniðurstöður
Undir „virkar síur“ kemur fram eftir hverju var leitað. Fyrir neðan kemur fram hverju leitin skilaði. Ef ekki tekst að finna notanda í fyrstu atrennu þarf að fjarlægja fyrri leitarskilyrði með því að smella á fjarlægja allar síur, og prófa önnur leitarskilyrði (finnist notandi ekki er líklegt að hann sé ekki skráður í kerfið).
- Smellið á tannhjólið lengst til hægri aftan við notandann.
- Reikningur notandans opnast. Nýtt lykilorð er slegið inn í viðkomandi reit (sjá mynd). Með því að merkja í reitinn birta má skoða hvort lykilorðið var slegið rétt inn.
- Smellið á uppfæra notandaskilgreiningu neðst á síðunni.