Moodle-umsjónaraðili skóla hefur réttindi til að stofna nýjar deildir og áfanga undir eigin skóla. Leiðinni er lýst hér fyrir neðan.
Nýr áfangi stofnaður
- Farið á forsíðu Moodle og smellið þar á eigin skóla.
- Smellið á tannhjólið hægra megin og á Sýsla með þennan flokk.
- Smellið á Búa til nýjan áfanga hnappinn.
- Gefið áfanganum nafn, veljið aðrar stillingar eins og hentar og vistið neðst á síðunni.
Ef smellt er á Vista og birta opnast áfanginn og hægt er að skrá kennara í hann, breyta uppsetningu eða móta áfangann frekar. Ef smellt er á Vista og fara til baka er hægt að halda áfram að stofna fleiri áfanga.
Sjá nánar viðmið um nafn áfanga og einkennisstafi skóla.
Sjá nánar um einstakar stillingar í uppsetningu áfanga.
Ný deild (flokkur)
Í skólum þar sem áfangar eru margir getur verið betra að setja áfanga í flokka s.s. íslenska, stærðafræði o.s.frv.
- Farið á forsíðu Moodle og smellið þar á eigin skóla.
- Smellið á tannhjólið hægra megin og á Mynda undirflokk.
- Gefið flokknum nafn. Athugið að viðeigandi yfirflokkur sé valinn þ.e. skólinn og skólaárið.
- Smellið á Búa til flokk.