Með því að setja upp flokk/flokka í einkunnabók er hægt að gefa nemanda heildareinkunn fyrir tiltekin verkefni í áfanga. Hægt er að láta öll verkefni innan flokks gilda jafnt eða að gefa hverju og einu sérstakt vægi. Hægt er að fella niður lægstu einkunn nemanda, eina eða fleiri, í útreikningi einkunnar fyrir flokkinn. Einnig er mögulegt að setja lágmarkseinkunn flokks. Einkunnir nemanda undir lágmarkseinkunn eru þá auðkenndar í einkunnagjafarskýrslu. Flokk er svo gefið vægi í lokaeinkunn áfanga.
Dæmi:
Lögð eru fyrir vikuleg próf. Þau eru sett saman í flokk í einkunnabók til að láta Moodle reikna heildareinkunn prófanna. Nemandi fær að sjá heildareinkunn sína fyrir öll prófin.

Hér hefur verið búinn til flokkurinn próf í einkunnabók og honum gefið 30% vægi í lokaeinkunn. Prófin eru jafngild og útreikningstegund flokksins hefur verið valin miðað við það. Þess vegna er hér ekki mögulegt að skrá vægi fyrir hvert og eitt próf.
Útreikningur flokks ákvarðar hvernig einkunnir í flokki reiknast saman
Mögulegt er að velja úr nokkrum gerðum útreiknings m.a.:
- Vegið meðaltal einkunna (weighted mean of grades) - Ef verkefni innan flokks hafa mismunandi vægi er nauðsynlegt að nota vegið meðaltal einkunna til að geta skráð vægi hvers verkefnis fyrir sig.
- Hrátt (einfalt) vegið meðaltal einkunna (simple weighted mean of grades) - Ef öll verkefni innan flokks gilda jafnt er hægt að velja hrátt vegið meðaltal. Þessi útreikningur gerir ráð fyrir að hámarkseinkunn verkefna geti verið mismunandi, t.d. að gefið sé á bilinu 0-10 í einu verkefni í flokknum, 0-25 í öðru o.s.frv.
- Meðaltal einkunna (mean of grades) - Ef verkefni í flokki gilda öll jafnt og hafa öll sömu hámarkseinkunn, sem dæmi að gefið sé á skalanum 0-10 í þeim öllum, hentar að velja meðaltal einkunna. Útreikningurinn er summa allra verkefna deilt með fjölda verkefna.
Mögulegt er að sleppa lægstu einkunn nemanda (einni eða fleiri) í útreikningi fyrir heildareinkunn flokks með því að setja viðeigandi tölu við sleppa lægstu, s.s. 1 til að sleppa lægstu einkunn nemanda (innan flokksins), 2 til að sleppa tveimur lægstu einkunnum nemanda o.s.frv.

Á myndinni er verið að setja upp einkunnaflokkinn kaflapróf
Leiðin: Áfangi > Einkunnir > Uppsetning > Uppsetning á einkunnabók
- Opnið áfangann og smellið á einkunnir í leiðartré.
- Farið í flipann uppsetningu og undirflipann uppsetningu á einkunnabók.
- Smellið á bæta við flokki neðst á síðunni. Gefið flokknum heiti og veljið útreikning flokks, sjá nánari útskýringar á möguleikum útreiknings í kaflanum fyrir ofan.
- Vistið breytingar.
Verkefni, próf eða önnur viðföng færð í flokk
- Merkið við þau verkefni sem á að færa í flokkinn, aftast í línunni.
- Veljið flokkinn í listanum neðst á síðunni (sjá mynd). Skilaboðin Recalculating grade koma upp.
- Smellið á Áfram.
Eftir að flokkur hefur verið búinn til kemur hann fram í listanum.
Vægi flokks
Vægi flokks í lokaeinkunn áfanga er skráð í reit við flokk (sjá mynd).
Ef reitur fyrir vægi flokks er ekki sýnilegur þarf að breyta tegund útreiknings fyrir áfangann sjálfan. Smella þarf á breyta aftan við áfangann (sjá mynd fyrir neðan), smella uppsetningu, velja síðan vegið meðaltal einkunna við útreikning og vista.