Klasar (knippi)
Með því að setja ákveðna hópa saman í klasa er hægt að nota ólíkar hópaskiptingar, t.d. skipta nemendum í fimm manna hópa í umræðu en í tveggja manna hópa í verkefni (sjá nánar kaflann um klasa).
Leiðin: Áfangi > Þátttakendur > tannhjól > Hópar
Moodle býður upp á tvær leiðir til að setja upp hópa í áfanga:
- Mynda hóp (einn í einu) og velja handvirkt nemendur í hópinn/hópana.
- Mynda hópa sjálfvirkt (sjá um sjálfvirka myndun hópa).
Einnig er hægt að leyfa nemendum að skrá sig sjálfir í hópa. Það er gert með því að stofna „tóma hópa“ og setja upp hópaval á áfangasíðuna til að nemendur geti skráð sig í hópana (sjá nemandi skráir sig sjálfur í hóp).
Í vídeóinu hér fyrir neðan er sýnt:
- hvernig hópur er stofnaður
- hvernig hópar eru myndaðir sjálfvirkt (02:00)
- og hvernig umræða er stillt miðað við hópa (04:18). (4:59 mín.)
ATH! Í vídeóinu er eldra viðmót Moodle. Til að komast í hópa í núverandi viðmóti þarf að fara í Þátttakendur og síðan í tannhjólið hægra megin.
Hópar from Kennslumiðstöð Háskóla Ísl on Vimeo.
Nokkur dæmi um notkun hópa í áfanga
- Hópar eru tengdir við umræðu svo nemendur geti rætt saman í hópum.
- Hópverkefni – hér er nauðsynlegt að tengja hópa við verkefnið.
- Dagbók nemanda: Einn nemandi er settur í hvern hóp, hóparnir settir í klasa og klasinn tengdur við umræðu („Dagbók nemanda“).
- Próf eða verkefni með skilyrtan aðgang. Einungis ákveðinn hópur/hópar hafa aðgang að verkefni/prófi.
- Möppur með skilyrtan aðgang. Einungis ákveðinn hópur/hópar hefur aðgang að möppunni.
- Kennarar skipta með sér námsmati í verkefni. Þegar verkefni er tengt við hópa getur kennari valið „sinn“ hóp og fengið upp verkefnaskil hópsins (verkefnið er ekki endilega eiginlegt hópverkefni).
Viðföng (t.d. umræður, skilaverkefni, próf) bjóða upp á þrjár hópastillingar. Þó sömu hópastillingar séu í boði í öllum viðföngum þá virka þær svolítið mismunandi eftir því um hvers konar viðfang er að ræða.
Þrjár hópastillingar (undir almennum stillingum í uppsetningu viðfangs):
- Engir hópar – allir nemendur saman, engir undirhópar
- Aðskildir hópar – nemandi sér aðeins eigin hóp, aðrir hópar eru ósýnilegir
- Sýnilegir hópar – nemandi vinnur með eigin hópi en getur skoðað vinnu annarra hópa