Spurningar skoðaðar
Leiðin: Áfangasíða > tannhjól > Meira > Spurningar
- Opnið spurningabanka áfangans með því að smella á tannhjólið í efra hægra horni áfangasíðunnar og velja Meira.
- Skrunið niður að spurningabanka og smellið á Spurningar.
- Ef spurningaflokkar hafa þegar verið stofnaðir má velja flokk spurninga efst. Spurningar innan flokksins koma þá fram fyrir neðan.
Spurning flutt í annan flokk
- Merkið við þá spurningu/þær spurningar sem á að flytja.
- Veljið flokkinn sem á að taka við spurningunum í reitnum neðan við spurningarnar.
- Smellið á Færa í.
Aðgerðarhnappar fyrir aftan spurningu
Við hverja spurningu eru nokkrir aðgerðahnappar:
Táknin/aðgerðahnapparnir aftan við spurninguna:
- Tannhjólið er til að breyta spurningu.
- Blöðin eru til að afrita spurningu.
- Stækkunarglerið er til að skoða spurningu.
- Krossinn er til að eyða spurningu.
Fyrir framan spurningu er ávallt tákn sem stendur fyrir gerð spurningar. Með því að halda músarhnappi yfir tákningu kemur gerð spurningarinnar fram.