- Farið á forsíðu Moodle og smellið þar á eigin skóla.
- Smellið á tannhjólið hægra megin og á kerfishópa.
Kerfishópar skólans koma upp. Ártöl í heiti kerfishópa standa fyrir fæðingarár nemenda í hópnum.
- Smellið á Skipa (aftasta táknið), aftan við kerfishópinn sem á að vinna með.
- Notið leitina í neðra hægra horni til að finna þann sem á að bæta í hópinn. Best er að leita eftir netfangi. Ef leitað er eftir nafni er oft nauðsynlegt að sleppa millinafni.
Veljið nafnið í glugganum hægra megin og smellið á Nýtt. Við það flyst nafnið yfir í núverandi notendur kerfishópsins vinstra megin. Aðgerðin er sjálfvirkt vistuð. - Til að bæta fleiri notendum við kerfishópinn, endurtakið 4. lið.