Leiðin: Áfangasíða í ritham – +nýtt viðfangsefni eða aðföng – snepill – nýtt
Það sem búið er til með snepli er birt beint á áfangasíðu. Snepill er notaður til að birta textabúta, myndir, vídeó eða annað. Snepil er hægt að afrita og draga á nýjan stað sem kemur sér vel þegar búa á til mörg eintök af því sama s.s. láréttar línur til að afmarka hluti, titla sem á að birta í hverri viku o.þ.h .
- Setjið áfangann í ritham.
- Smellið á +nýtt viðfangsefni eða aðföng.
- Skrunið niður í panelnum sem opnast, veljið snepil og smellið á nýtt.
- Setjið innihaldið í ritilinn og vistið.