Aðgangsstýringar

Í Moodle er hægt að stýra aðgangi að bæði námsgögnum og viðfangsefnum út frá mismunandi forsendum. Einnig er hægt að setja aðgangsstýringar á einstaka viku eða hluta áfanga.

Dæmi um aðgangsstýringar:

  • eingöngu nemendur sem fengu einkunn undir lágmarkseinkunn í ákveðnu prófi fá aðgang að verkefni
  • efni möppu er einungis haft aðgengilegt frá tilteknum degi/tíma
  • nemandi þarf að hafa lokið tilteknum verkefnum með einkunn yfir 8 til að fá aðgang að prófi
  • einungis nemendur sem tilheyra ákveðnum hópi fá aðgang að möppu

Sjá einnig síðuna „próf fyrir valda nemendur“ þar sem útskýrt er hvernig aðgangi er stýrt m.v. hóp.

Mögulegt er að setja margar aðgangsstýringar í sama atriði og þarf þá nemandi að uppfylla allt til að fá aðgang að því sem verið er að setja upp.

Stýra aðgangi

Myndin sýnir stillingar til að skilyrða aðgang að atriði. Smellt er á ný aðgangsstýring

Stýra aðgangi

Valin er viðeigandi aðgangsstýring

Stýra aðgangi

Hér hefur verið valið „activity completion“ til að tengja við lok í öðru verkefni/prófi o.s.frv. Í veldu listanum er hægt að velja úr þeim atriðum sem þegar hafa verið stofnuð í áfanganum s.s. verkefni, próf, skjöl. Þessi stilling tengist því hvernig öðrum atriðum telst vera lokið. Í uppsetningu þeirra atriða þarf að skilgreina hvernig þeim telst vera lokið og hver lágmarkseinkunn þeirra er (ef um einkunn er að ræða).