Áfangasíða í ritham > +Nýtt viðfangsefni eða aðföng > Myndagallerí
Eins og nafnið bendir til er verkfærið til að setja upp myndagallerí í Moodle. Meðal þess sem hægt er að velja um í uppsetningu myndagallerís er hvort skrá má athugasemdir á síður galleríis, hvort skýringartexti á að fylgja myndum og hversu margar myndir á að birta á hverri síðu. Þegar smellt er á mynd í galleríinu opnast hún í „lightbox“ þar sem smellt er á „next“ til að sjá næstu mynd. Boðið er upp á að hlaða mynd niður.
- Setjið áfanga í ritham.
- Smellið á +nýtt viðfangsefni eða aðföng, veljið myndagallerí og smellið á nýtt.
- Gefið galleríinu heiti og skráið lýsingu í ritilinn fyrir neðan ef þörf krefur. Lýsingin birtist fyrir neðan titilinn þegar galleríið er opnað.
- Veljið þær stillingar sem henta undir ítarlegt.
- Smellið á vista og birta til að setja inn myndir.
- Smellið á add images, dragið inn myndir og smellið aftur á add images.
Myndagallerí uppfært
Til að bæta myndum við myndagallerí er smellt á galleríið á áfangasíðunni og á „Add images“. Myndir eru fluttar inn eins og áður.
Til að breyta eða eyða myndum þarf að setja myndagalleríið í ritham.
- Smellið á myndagalleríið á áfangasíðunni.
- Smellið á hnappinn í ritham efst til hægri eftir að komið er inn í myndagalleríið. Listi með möguleikum er birtur fyrir neðan hverja mynd (sjá mynd).
Nánari upplýsingar um myndagallerí á moodle.org: Lightbox Gallery – https://moodle.org/plugins/mod_lightboxgallery