Leiðin: Áfangasíða í ritham > +Nýtt viðfangsefni eða aðföng > Skrá > Nýtt
*Athugið að þegar áfangi er í ritham er hægt að draga skrá úr tölvu beint inn á forsíðu áfangans en neðangreind leið er einnig möguleg.
- Setjið áfanga í ritham.
- Smellið á +nýtt viðfangsefni eða aðföng í þeirri viku/hluta þar sem skráin á að vera (einnig er hægt er að flytja skrána eftir á með því að draga).
- Í panelnum sem opnast þarf að skruna niður, velja skrá og smella á nýtt (eða tvísmella á skrá).
- Skránni er gefið nafn.
- Möguleg er að skrá upplýsingar í ritillinn fyrir neðan. Upplýsingarnar er hægt að birta á forsíðu áfangans ef merkt er í reit fyrir neðan ritil.
- Skráin er dregin inn í Moodle eða smellt á +hnappinn til að ná í skrána (sjá mynd).
- Veljið aðrar stillingar eins og hentar og vistið neðst á síðunni.
Aðrir möguleikar
Kennari getur sett inn fleiri skrár hér og jafnvel flokkað þær í möppur. Nemendur hafa þó einungis aðgang að einni skrá. Þessi möguleiki gagnast ef nemendur eiga að hafa aðgang að einni skrá í einu af tilteknu úrvali skráa. Með því að smella á skrána og velja „skilgreina aðalskrá“ er valin sú skrá sem nemendur eiga að fá aðgang að á hverjum tíma.
*Athugið að nemendur hafa ekki aðgang að möppum eða mörgum skrám í einu með þessari aðgerð.