Próf býður upp á að gefa tilteknum nemanda eða nemendum, sérstakan próftíma, annan en meginstillingar prófsins segja til um. Til að gera þetta þarf að setja upp frávik í prófinu.
Frávik býður upp á neðangreinda möguleika:
- að gefa lengri próftíma.
- að leyfa að próf sé tekið annan dag og/eða á öðrum tíma.
- að leyfa að taka próf oftar eða sjaldnar en meginstillingar þess kveða á um.
- að setja lykilorð á próf.
- að framlengja próftíma eftir að nemandi hefur byrjað próftöku. Próftími nemanda uppfærist um leið.