Í ritham – +nýtt viðfangsefni eða aðföng – síða – nýtt
Síða er venjuleg vefsíða sem hægt er að bæta við áfanga. Á síðuna er hægt að setja ýmis konar efni; texta, tengla, myndir, vídeó, hljóðskrár eða annað. Oft hentar betur að nota vefsíðu undir efni sem kennari skrifar sjálfur, t.d. námsáætlun, í stað þess að setja efnið í skrá og hlaða upp í Moodle. Einfaldara er að uppfæra efni sem sett er á vefsíðu auk þess sem hún er aðgengilegri fyrir snjalltæki en skrár. Ef nemandi þarf hins vegar að geta hlaðið efninu niður hentar betur að setja efnið inn sem skrá.
- Setjið áfangann í ritham.
- Smellið á +nýtt viðfangsefni eða aðföng.
- Skrunið niður í panelnum sem opnast, veljið síða og smellið á nýtt (eða tvísmellið á síða).
- Gefið síðunni nafn. Nafn síðunnar verður tengill á forsíðu áfangans.
- Hægt er að setja lýsingu í ritilinn fyrir neðan ef óskað er og birta hana með titlinum á forsíðu áfangans.
- Efni síðunnar er sett í neðri ritlinn.
- Veljið aðrar stillingar eins og við á og vistið neðst á síðunni.
Á síðu er einnig hægt að birta ýmis konar efni annars staðar frá t.d. Google-kort, Youtube eða Vimeo vídeó eða frétt úr vefmiðli. Það er gert með því að líma „embed“ kóða í html umhverfi ritilsins.