Með því að forskoða próf og svara prófspurningunum getur kennari t.d. kannað:
- hvort svarmöguleikar eru skilgreindir rétt
- hvort uppsetning spurninga er eðlileg
- hvernig uppsetning prófsins í heild kemur út og
- hversu langan tíma það tekur að taka prófið.
Kennari getur forskoðað/tekið prófið eins oft og þörf krefur. Forskoðun líkir eftir eiginlegri próftöku en prófúrlausn verður ekki til. Sjá lýsingu hér fyrir neðan.
- Smellið á prófið á áfangasíðunni (ekki þarf að vera í ritham).
- Smellið á tannhjólið hægra megin og veljið Forskoða. Prófið opnast.
- Farið í gegnum prófið alla leið líkt og nemandinn. Sendið inn prófið með því að smella á Senda og hætta. Eiginleg prófúrlausn verður ekki til en Moodle sýnir kennara gerviprófúrlausn. Í henni kemur fram einkunn kennarans og hversu mörg stig hann fékk fyrir hverja spurningu, hvort spurningum var svarað rétt.
Laga /breyta spurningum í forskoðuninni eða endurskoðuninni (prófúrlausninni)
Í forskoðun prófsins hefur kennari aðgang að hlekknum breyta spurningu, þar sem hann getur breytt/lagað spurninguna. Eftir lagfæringar getur kennari haldið áfram að forskoða prófið.
Hvað er athugað í forskoðun prófs?
Eftir atvikum er t.d. hægt að kanna í forskoðun prófs:
- Orðalag spurninga og almennan skýrleika.
- Hvort réttir svarliðir eru skilgreindir sem réttir. Kennari getur svarað spurnigum og athugað hvort hann fær 10/fullt skor í prófinu.
- Hvort spurningar komi í ólíkri röð í hverri forskoðun (ef Handahófsraða spurningum er valið í Breyta prófi).
- Hvort svarliðir krossaspurningar séu stokkaðir/í ólíkri röð í hverri forskoðun (ef merkt er við það í spurningu).
- Hvort réttur svarliður í krossaspurningum er á ólíkum stað í hverri spurningu, t.d. að rétta svarið sé ekki oftast í A.
- Hvort í svarlið spurningar er vísað í svarlið fyrir ofan eða í svarlið A t.d. en svarliðir síðan stilltir á að vera ruglaðir.
- Hvort mismunandi spurningar koma í hverri forskoðun (gildir ef Moodle er látið velja spurningar af handahófi í próf).