Skrá bætt inn á áfangasíðu
Þegar ein skrá er flutt á áfangasíðuna er hún einfaldlega dregin inn. Ef um mynd er að ræða spyr Moodle hvort birta eigi myndina á áfangasíðunni eða hvort myndin á að birtast sem tengill.
- Setjið áfangann í ritham.
- Opnið glugga í tölvunni (gula mappan neðst á skjánum) og finnið skrána.
- Dragið skrána yfir í áfangann.
Mappa flutt úr tölvu á áfangasíðuna
Einfalt er að flytja möppu (með fjölda skráa og/eða undirmöppum) inn á áfangasíðuna en áður þarf að þjappa hana þ.e. gera úr henni sk. zip-skrá.
- Byrjið á að finna möppuna í tölvunni og þjappa hana. Það er gert með því að hægri smella á möppuna og velja compress.
- Setjið vef áfangans í ritham og dragið zip-skrána inn á forsíðu áfangans.
- Gluggi opnast þar sem möguleikinn afþjappa er valinn. Smellið á sækja.