Leiðin: Áfangasíða í ritham > +Nýtt viðfangsefni eða aðföng > Skilaverkefni
- Setjið áfangann í ritham.
- Smellið á +Nýtt viðfangsefni eða aðföng, veljið Skilaverkefni og smellið á Nýtt, eða tvísmellið á skilaverkefni.
- Skráið heiti verkefnis og lýsingu á því sem nemendur eiga að gera/skila í ritilinn. Fyrir neðan ritilinn er hægt að hlaða upp hjálparefni fyrir nemendur, ef þarf.
- Veljið dag- og tímasetningar. Einnig má velja dagsetningarnar með því að smella á dagatalstáknið.
- Merkið við Skilaskrár til að leyfa nemanda að skila skrá eða Texti á vef til að leyfa nemanda að skrifa beint inn í Moodle.
- Vistið neðst á síðunni, annað hvort með Vista og fara aftur í áfanga eða Vista og birta. Hlekkur á verkefnið sést nú á áfangasíðunni og nemendur geta skilað um leið og dag-/tímasetningar leyfa.
Í uppsetningu skilaverkefnis er boðið upp á margvíslegar stillingar sem bjóða upp á mismunandi virkni. Til að sjá útskýringar á einstökum stillingum er hægt að smella á spurningamerkin. Hér til vinstri eru leiðbeiningar um fleiri möguleika í uppsetningu skilaverkefnis t.d. hvernig skilaverkefni er sett upp sem hópverkefni, uppsetning einkunnaramma (rubric) og fleira.