Skilaverkefni er sjálfkrafa stillt á einfalda beina einkunnagjöf sem þýðir að gefnar eru einkunnir með því að skrá tölu t.d. frá 0-10. Ef kennari vill nota einkunnaramma (rubric) við einkunnagjöf verkefnis þarf að velja það í uppsetningu verkefnisins undir einkunn (sjá mynd).
Í vídeóinu fyrir neðan er sýnt hvernig settur er upp einkunnarammi í skilaverkefni og hvernig einkunnir eru gefnar með einkunnaramma.
Einkunnarammi fundinn aftur
Eftir að skilaverkefni er stofnað:
- Veljið nota einkunnaramma sem til er fyrir. Leitið að rammanum með því að slá inn heiti hans í leitarlínuna.
Hægt er að kalla fram alla einkunnaramma með því að merkja við nota líka mín eigin snið og smella á leita, án þess að setja neitt í leitarlínuna. - Þegar rétti ramminn er fundinn er smellt á nota þetta snið sem stílsnið neðan við einkunnarammann.